María Ellingsen

Leit
Close this search box.

Um höfundinn

María var bókaormur frá barnæsku og heimur orðanna varð henni snemma kær. Þegar hún útskrifaðist úr Menntaskóla 18 ára gömul – aðeins of ung til að fara ein síns liðs erlendis í leiklistarnám ákvað hún að nota tímann til að þjálfa sig í að skrifa og sótti um starf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ritstjórarnir þar […]

Arctic Women – Svalbard Movements

Arctic Women er nýtt verk um konur á Norðurslóðum og áhrif náttúrunnar á sál manneskjunnar sem María og norska leikkonan Juni Dahr hafa þróað ásamt finnska dansaranum Reijo Kela og leikmyndahöfundinum Snorra Frey Hilmarssyni. Arctic Women – Svalbard Movements er fyrsta útgáfa þess og var frumsýnd í Taubanecentralen, gamalli kolajárnbrautastöð í Longyearbyen haustið 2019.  Svalbard […]

Hátíðarsýning Nordic Ljus

Listahátíðin Nordic Ljus 2014 endaði með magnaðri hátíðarsýningu utandyra í Joensuu í Finnlandi.  Listahátíðin var skipulögð þannig að ungir norrænir listamenn í dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist fengu tækifæri til að ferðast á milli landa og taka þátt í þremur vinnustofum með þarlendum listamönnum, og safna efnivið fyrir lokasýninguna. Listamenn frá fimm löndum leiddu […]

Hátíðarsýning Nordic Ljus

Listahátíðin Nordic Ljus 2014 endaði með magnaðri hátíðarsýningu utandyra í Joensuu í Finnlandi.  Listahátíðin var skipulögð þannig að ungir norrænir listamenn í dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist fengu tækifæri til að ferðast á milli landa og taka þátt í þremur vinnustofum með þarlendum listamönnum, og safna efnivið fyrir lokasýninguna. Listamenn frá fimm löndum leiddu […]

Augun mín og augun þín

Verk um ástina, missinn og ferðalagið í gegnum sorgina. Byggt á sögum þriggja þekktra skáldkvenna. Í morgunsári 19. aldar urðu þrjár skáldmæltar norðanstúlkur fyrir mikilli ástarsorg hver í sínu lagi og brugðust við á ólíkan hátt. Þetta voru þær Guðný frá Klömbrum, Vatnsenda Rósa og Agnes Magnúsdóttir. Maður Guðnýjar þoldi illa gáfur hennar og sleit […]

Ferðalag Fönixins

Hvernig tökumst við á við erfiða lífreynslu sem skekur tilveru okkar og ber með sér myrkur og sársauka? Hvernig sleppum við takinu, leyfum hluta af okkur að deyja, en höldum áfram og endurfæðumst? Þetta er hin eilífa áskorun mannlegrar tilveru. Joseph Cambell einn fremsti goðsagnafræðingur heimsins segir að goðsögur séu líkt og draumar sem mannkynið […]

Mammamamma

Leiksmiðjuverk eftir Maríu Ellingsen, Charlottu Böving og leikhópinn um það að vera mamma og eiga mömmu. Byggt á viðtölum við konur. María var hluti af leikhópnum og fór með mörg ólík hlutverk.

Sælueyjan

Sælueyjan fjallar um heim erfðarvísinda. Karlmaður finnst á hálendinu sem þrátt fyrir unglegt útlit virðist ævagamall. Við rannsókn kemur í ljós að af einhverjum orsökum getur hann ekki dáið og áhugi vísindamanna vaknar um að í honum felist lykilinn að eilífu lífi. En um leið  vakna siðferðilegar spurningar um hversu langt eigi að ganga í […]

Úlfhamssaga

Með Úlfhamssögu steig María Ellingsen fram sem leikstjóri og höfundur og fór fyrir hópi listamanna við að skapa sýningu úr fornaldrarrímum þar sem söngur, dans og drama mynda eina heild.

Femin.is

Sjónvarpsþátturinn femin.is var tengdur samnefndum vefmiðli og tók mið af honum. Þátturinn var sérsniðinn að konum og við hugmyndavinnuna var mikið hugsað út í hvað höfðar til kvenna. “Konur vilja vera með lappir upp í sófa að tala saman í ró og næði, hafa fallegt í kringum sig og eitthvað til að narta í” – var […]