Sælueyjan

Ár
2007
Tegund
Leikstjórn
Hlutverk
Leikstjóri og höfundur leikgerðar
Leikstjóri
María Ellingsen

Sælueyjan fjallar um heim erfðavísinda. Karlmaður finnst á hálendinu sem þrátt fyrir unglegt útlit virðist ævagamall. Við rannsókn kemur í ljós að af einhverjum orsökum getur hann ekki dáið og áhugi vísindamanna vaknar á því að í honum felist lykillinn að eilífu lífi. En um leið vakna siðferðilegar spurningar um hversu langt eigi að ganga í þágu vísindanna. Kveikjan að verkinu er sú umræða sem spannst í kringum stofnun Íslenskrar erfðagreiningar.

María fékk verkið mjög hrátt í hendurnar og þróaði það áfram með Hirdwall og Grétu Maríu Bergsdóttur dramatúrg. Úr varð að þær gerðu sína eigin leikgerð og fengu Snorra Frey Hilmarsson leikmyndahöfund, Björn Bergstein ljósahönnuð og Gideon Kiers vídeólistamann það verkefni að opna áhorfandanum leið inn í mannslíkamann og genin. Í þeim tilgangi var sviðinu í Kassanum snúið langsum svo hægt væri að hafa stóra skjái til að varpa þessari myndveröld á. María vann síðan með leikhópnum í spunavinnu í kringum efnið. Hún notaði aðallega Viewpoints-aðferðina, sem varð síðan frásagnarstíll sýningarinnar. Ólafur Björn Ólafsson, ungt tónskáld, samdi mjög áhrifaríka tónlist fyrir uppsetninguna.