Mammamamma

Ár
2008
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Höfundur og leikari
Leikhús
Opið út / Hafnarfjarðarleikhúsið
Leikstjóri
Charlotte Bøving

Leiksmiðjuverk eftir Maríu Ellingsen, Charlottu Böving og leikhópinn um það að vera mamma og eiga mömmu. Byggt á viðtölum við konur. Auk þess að vera einn höfunda var María hluti af leikhópnum og fór með mörg ólík hlutverk.

Umsagnir

„Ég klæddi mig í bleika hlýja sokka í anddyri Hafnarfjarðarleikhússins og gekk inn í bleikan og mjúkan heim … alltumlykjandi hlýja, mýkt og fínlegur húmor. Líka í þeim fjölmörgu smámyndum sem leikkonurnar fjórar bregða upp fyrir áhorfendum af lífinu frá fæðingu til dauða, aðallega þó úr lífi mæðra: gleðinni og vandanum að verða móðir, vera móðir, sambandi mæðra og dætra. Textum safnað saman úr eigin reynslu og annarra. Leiklausnir fyrir samtölin, upplifanir og drauma eru hugmyndaríkar; hnefaleikar, glíma, fjölleikar, dans og söngur fléttast haganlega saman í heild sem er ekki lína, fremur hringur.“
María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið