Ferðalag Fönixins

Ár
2011
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Höfundur, leikari, dansari og framleiðandi
Leikhús
Borgarleikhúsið
Leikstjóri
María Ellingsen

Hvernig tökumst við á við erfiða lífsreynslu sem skekur tilveru okkar og ber með sér myrkur og sársauka? Hvernig sleppum við takinu, leyfum hluta af okkur að deyja en höldum áfram og endurfæðumst? Þetta er hin eilífa áskorun mannlegrar tilveru. Joseph Campbell, einn fremsti goðsagnafræðingur heims, segir að goðsögur séu líkt og draumar sem mannkynið dreymir saman; draumar sem hjálpa okkur að skilja heiminn og hlutverk okkar í honum.

Í þessu dansleikhúsverki, sem frumsýnt var á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík, stíga Reijo Kela dansari, María Ellingsen leikkona og Eivør Pálsdóttir söngkona saman á svið. Þau leiða áhorfandann inn í eldinn og gefa honum tækifæri til að spegla eigin lífsreynslu í þessari alheimsgoðsögu um listina að deyja og fæðast á ný.

María átti hugmyndina að verkefninu og frumkvæðið, en verkið var þróað og samið af hópnum. Sýningin ferðaðist síðan víða um Norðurlönd.

Umsagnir

„Töfrandi sýning“
Fréttablaðið
„Óvenjulegt ferðalag, sýning sem skar sig úr á Listahátíð“
Grapevine
„Í þessari frumskapandi uppfærslu af Ferðalagi Fönixins er það ekki bara innihaldið sem höfðar til manns heldur það hvernig listformin runnu saman þegar hver listamaður notaði sína töfra svo úr varð einstakur galdur og stórkostleg heildarupplifun. Bæði Reijo Kela og María Ellingsen hafa sterka, krefjandi útgeislun og túlka af nákvæmni. Samspil þeirra, að hluta spunnið, var samstillt og þeim tókst án þess að segja eitt einasta orð að skapa tvær trúverðugar persónur, manneskjur af holdi og blóði. Myndræn útfærsla er einföld og stílhrein en úthugsuð og áhrifamikil eftir því. Leikmyndin samanstendur af völundarhúsinu, reyknum og tveimur stólum og svo líkömum listamannanna, íklæddum snilldarlega formuðum búningum sem verða að myndrænum, hreyfanlegum skúlptúrum í samspili við litbrigði ljósanna.“
Nya Åland