Femin.is
- Ár
- 2002
- Tegund
- Sjónvarp
- Hlutverk
- Þáttastjórnandi og höfundur

Sjónvarpsþátturinn femin.is var tengdur samnefndum vefmiðli og tók mið af honum. Þátturinn var sérsniðinn að konum og við hugmyndavinnuna var mikið hugsað um hvað höfðar til kvenna. „Konur vilja hafa lappirnar uppi í sófa, tala saman í ró og næði, hafa fallegt í kringum sig og eitthvað til að narta í“ var eitt af því sem kom fram á hugmyndafundi og var notað sem innblástur fyrir umgjörðina.
Í hverjum þætti var skipt um þemalit og blóm, hlutir, púðar og klæðnaður valin í stíl. Viðtölin fengu óvenju langan tíma og voru með rólegu yfirbragði. Húsgögnin voru þægileg: grjónapúðar, stórir púðar til að sitja á á gólfinu og bekkir með púðum. Markmiðið var að fólk gæti verið eins og heima hjá sér en ekki setið í stífum stellingum. Gestum var boðið að vera á sokkaleistunum eða berfættir og jafnvel boðið upp á fótabað.
Innihald þáttarins tók mið af vefsíðunni og flokkum hennar: starfsferli, mat, heilsu, kynlífi, samskiptum kynjanna og barnauppeldi. Leiðarljós þáttarins var að hann væri skemmtilegur innblástur fyrir lífið, jákvæður og lausnamiðaður.