Augun mín og augun þín
- Ár
- 2014
- Tegund
- Leikverk
- Hlutverk
- Höfundur
- Leikstjóri
- Kevin Kuhlke
Verk um ástina, missinn og ferðalagið í gegnum sorgina. Byggt á sögum þriggja þekktra skáldkvenna.
Í árdaga 19. aldar urðu þrjár skáldmæltar norðanstúlkur fyrir mikilli ástarsorg hver í sínu lagi og brugðust við á ólíkan hátt. Þetta voru þær Guðný frá Klömbrum, Vatnsenda Rósa og Agnes Magnúsdóttir.
Maður Guðnýjar þoldi illa gáfur hennar og sleit samvistum við hana. Hún yfirbugaðist af skilnaðarsorginni og dó innan árs. Agnes var svikin af ástmanni sínum og fylltist við það slíkri heift að hún réð honum bana og týndi fyrir það lífi sínu. Rósa missir æskuástina sína í hendur annarrar konu en vinnur sig í gegnum sorgina og nær aftur vopnum sínum, menntar sig, ferðast og loks finnur hún ástina á ný.
Lífið er lífið og enginn kemst í gegnum það skrámulaust en hverju getum við ráðið?
María Ellingsen á hugmyndina að þessu verki og hefur ásamt Kevin Kuhlke og Snorra Frey Hilmarssyni þróað það áfram. Ein útgáfa var leiklesin við New York-háskólann í Abú Dabí, önnur í Borgarleikhúsinu og sú þriðja sýnd í fullri uppsetningu í nemendaleikhúsi New York-háskóla í New York. Nú vinnur María að lokaútgáfu sem sýnd verður hérlendis.





