Vitleysingarnir

Ár
2000
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Áslaug
Leikhús
Hafnarfjarðarleikhúsið
Leikstjóri
Hilmar Jónsson

Svört kómedía um nútímasamfélagið, hraða þess og firringu. Ráðherrann, ritstjórinn, verðbréfasalinn og rithöfundurinn eru á meðal „þjóðkunnra“ persóna í verkinu; allt fólk á miðjum aldri á mikilli hraðferð upp metorðastigann. En ekki er allt sem sýnist, því undir sléttu og felldu yfirborðinu kraumar einmanaleikinn. María lék umhverfisráðherrann Áslaugu, sem er gift yfirlækninum Jónasi.

Umsagnir

„Bráðfyndið verk um ófyrirleitnar persónur sem ná sínu fram á kostnað okkar hinna … María Ellingsen gæðir framakonuna Áslaugu lífi og tilfinningu, allt að því í mótsögn við kaldrifjaðan persónuleikann sem kemur fram í textanum.“
Morgunblaðið