Allir hlutir fallegir
- Ár
- 2001
- Tegund
- Sjónvarp
- Hlutverk
- Leikari
- Leikstjóri
- Ragnar Bragason
Allir hlutir fallegir er áhrifamikil sjónvarpsmynd í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Hún fjallar um fegurðardýrkun, sjálfsmynd og þrána eftir að vera elskaður fyrir það sem maður er. Þegar ung kona verður fyrir alvarlegum brunasárum neyðist hún til að horfast í augu við líf sem hefur mótast af útliti hennar. Óvænt samband við lýtalækni vekur spurningar um ástina, mannlega nánd og hvað felist í raunverulegri fegurð.
Umsagnir
„Ragnar Bragason segir okkur sögu ungrar konu sem brennst hefur illa og á í sérstæðu sambandi við lýtalækninn sinn. Við komumst að því að konan hafi verið skrautfjöður eiginmannsins út á fegurð sína eina, fengið nóg af því og skaðað sig sjálf. Lýtalæknirinn heillast hins vegar af innri fegurð konunnar og verður ástfanginn. En konan hrindir honum frá sér og spyr hann af hverju hann vilji gera hana fallega aftur, „fyrir hvern? Mig? Sjálfan þig?“ … Ragnar hefur mjög gott vald á myndmiðlinum, hver rammi er úthugsaður í myndinni og frásögnin treystir að miklu leyti á myndmálið. Það er einfalt og smekklegt. Við undirleik tónlistar Barða Jóhannssonar og með lágstemmdri túlkun leikaranna verður verkið eiginlega að „myndljóði“ frekar en dramatísku sjónvarpsleikriti, þótt aðstæður konunnar séu vissulega dramatískar.“