Salka – ástarsaga

Ár
1999
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Salka Valka
Leikhús
Annað Svið / Hafnarfjarðarleikhúsið
Leikstjóri
Hilmar Jónsson

Salka – ástarsaga er leiksýning byggð á einu þekktasta verki Halldórs Laxness. Sagan fjallar um ást, sjálfstæði og átök einstaklingsins við samfélagið. Í forgrunni er Salka Valka, ung kona sem neitar að beygja sig undir hefðbundin kynhlutverk og berst fyrir því að móta eigin örlög. Ást hennar og Arnaldar verður að átakasögu þar sem frelsisþrá, stolt og mannlegar tilfinningar takast á.

Í þessari leikgerð fylgjumst við með Sölku Völku eina andvökunótt rifja upp líf sitt og reyna að ákveða hvort hún eigi að sleppa takinu á ástinni sinni. María átti frumkvæðið að þessari uppfærslu og lék Sölku Völku fullorðna.

Umsagnir

„Víðáttumikið sviðið er rökkvað. Til hægri stendur stúlka og horfir út um glugga á dálítilli kytru. Það kveður við brottfararflaut frá strandferðaskipi. Í fjarska rísa tignarleg vestfirsk fjöll, nær liggur bryggja í áttina til okkar. Það er úðarigning. Þessi upphafsmynd Sölku – ástarsögu í gamla fiskvinnslusalnum í Hafnarfirði verður ógleymanleg, svo áhrifamikil er hún, og hvað eftir annað í sýningunni komu svona augnablik þar sem efni, mynd og hljóð sameinuðust í æðra veldi.“
Silja Aðalsteinsdóttir, DV, 25. október 1999
„Mögnuð kvenlýsing. María túlkaði hina þroskuðu Sölku af tilfinningu og sannfæringu sem risti djúpt … þær Magnea og María bera sýninguna uppi á glæsilegan hátt …“
Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið