Dómsdagur

Ár
1998
Tegund
Sjónvarp
Hlutverk
Anna og Sólborg
Leikstjóri
Egill Eðvarðsson

Sjónvarpsmynd um hið fræga Sólborgarmál, þar sem Sólborg og bróðir hennar voru ákærð fyrir að hafa borið út barn sitt. Hinn nýútskrifaði lögfræðingur Einar Benediktsson skáld var fenginn til að dæma í málinu og það fór ekki betur en svo að aðalvitnið í málinu deyr í höndunum á honum. Hann varð aldrei samur maður eftir þetta, þjáðist upp frá því af myrkfælni, gat aldrei verið einn og taldi Sólborgu fylgja sér og ásækja sig í svefni. Hann lést á dánardægri hennar, 12. janúar, 47 árum síðar.

Umsagnir

„Leikarar í helstu hlutverkum eru hver öðrum betri. María Ellingsen leikur bæði blaðakonuna Önnu og Sólborgu og sýnir mikið öryggi og heldur alveg í við stórleik Arnars Jónssonar í hlutverki Einars Benediktssonar.“
Morgunblaðið