Beðið eftir Beckett
- Ár
- 1998
- Tegund
- Leikhús
- Hlutverk
- Leikari og framleiðandi
Beðið eftir Beckett var tilraunakennd leiksýning á vegum Annars sviðs, sett upp í Iðnó árið 1998 í leikstjórn Þorsteins J. Vilhjálmssonar. Sýningin byggðist á þremur stuttverkum Samuels Beckett, Leikslokum, Vögguvísu og Síðasta segulbandi Krapps, og kannaði einsemd mannsins, minningar, þrá og erfiðleika mannlegra samskipta. Með nýstárlegri samþættingu leiklistar, tónlistar, hljóðs og myndmáls skapaðist ljóðrænn og grátbroslegur heimur þar sem mörkin milli veruleika og ímyndunar urðu óljós. María Ellingsen fór með hlutverk í Vögguvísu, þar sem einangrun, þrá eftir tengslum og innri heimur konunnar eru í brennidepli.
Umsagnir
„Síðasti einþáttungurinn, Vögguvísa (Rockaby, 1981), samanstendur af orðum/hugsunum konu sem er komin að endalokum í margs konar skilningi. Langur dagur er liðinn og „tímabært að hún hætti“. Einmanakennd, þreyta, sambandsleysi og þráin eftir dauðanum gegnumsýra þennan texta sem María Ellingsen las (af bandi) á áhrifaríkan hátt. María situr í ruggustól, hreyfingarlítil, hlustar á eigin rödd og tekur undir einstaka setningu. Sú staðreynd að María er barnshafandi jók áhrif textans til muna. Segja má að dauðaþrá verksins fái aukna vídd með lífinu sem berst í kviði konunnar.“