Er ég mamma mín?

Ár
2020
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Leikari
Leikhús
Borgarleikhúsið
Leikstjóri
María Reyndal

Er ég mamma mín? er leikverk eftir Maríu Reyndal sem gerist á tveimur tímabilum, um 1980 og í samtímanum, og fylgir sömu fjölskyldunni í gegnum kynslóðir. Þegar húsmóðir ákveður að hætta að sinna hefðbundnum skyldum sínum og fer í eins konar heimilisverkfall raskast valdahlutföllin innan fjölskyldunnar.

Áratugum síðar sjáum við hvernig atburðir fortíðarinnar hafa mótað næstu kynslóð. Með húmor, hlýju og beittri samfélagssýn fjallar verkið um hjónabandið, stöðu kvenna, uppreisn gegn hefðbundnum kynhlutverkum og flókin tengsl mæðgna.

María lék bandarískan framsagnarkennara sem hafði mótandi áhrif á mömmuna.

Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í febrúar 2020, í leikstjórn höfundar, og naut mikilla vinsælda.

Er ég mamma mín? er vel gerð sýning, hugvitssamleg og samkvæm sjálfri sér. Hún er í beinu samtali við okkar samtíma og vekur upp áleitnar spurningar sem augljóst er að áhorfendur finna fyrir og taka afstöðu til – viðbrögð áhorfenda sýndu svo ekki var um að efast að þeir kunna gott að meta, áleitið efni, snjöll efnistök, glæsilega umgjörð og fantagóðan leik.

Umsagnir

„Er ég mamma mín? eftir Maríu Reyndal í uppsetningu Kvenfélagsins Garps fjallar um samband mæðgna og þær ólíku samfélagslegu aðstæður sem þær takast á við. Verkið skírskotar með beinum hætti inn í umræðu samtímans um reynsluheim kvenna, kvenfrelsi og kúgun feðraveldisins og tilfinningaleg áföll sem yfirfærast milli kynslóða.“
RÚV / Karl Ágúst Þorbergsson
„Reyndar er samleikur ákaflega glæsilegur eiginleiki þessarar sýningar. María Ellingsen fer með nokkur hlutverk og er ánægja að sjá hana á sviði – er ekki kominn tími til að nýta krafta hennar meira og betur í íslensku atvinnuleikhúsi?“
Kjarninn / Jakob S. Jónsson