Ísalög

Ár
2020
Tegund
Sjónvarp
Hlutverk
Utanríkisráðherra Íslands
Leikstjóri
Cecilie A. Mosli

Sænsk-íslensk spennuþáttaröð um sænskan ráðherra sem leggur til að olíuborun verði bönnuð á norðurskautssvæðinu. Þegar Norðurskautsráðið hittist á Grænlandi til að undirrita sáttmála þess efnis er ráðist á sænskt skip í nágrenninu og áhöfninni rænt. Árásin reynist vera fyrsti hluti vel skipulagðrar aðgerðar sem ætlað er að koma í veg fyrir undirritun sáttmálans.

Þættirnir eru að mestu teknir upp á Íslandi og María lék utanríkisráðherra Íslands í Norðurskautsráðinu. Í leikarahópnum voru margar norrænar stjörnur, svo sem Lena Endre, Bianca Kronlöf, Alexander Karim, Johannes Kuhnke, Angunnguaq Larsen, Nukâka, Nicolas Bro, Hauk Heyerdahl, Kristofer Gummerus, Marina Bouras og Reine Brynolfsson.