Svanurinn

Ár
1996
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Dóra
Leikhús
Annað Svið / Borgarleikhúsið
Leikstjóri
Kevin Kuhlke

Dag einn brotlendir svanur á glugganum hjá hjúkrunarkonunni Dóru. Hún aumkar sig yfir hann og hjúkrar honum í óþökk mjólkurpóstsins unnusta síns. Svanurinn og Dóra verða ástfangin og fyrst reynir hann að breyta sér í mann en þegar það tekst ekki þá breytist hún í svan og þau fljúga á brott. María lék hina hjartagóðu Dóru.

Umsagnir

„Sýning sem sameinar á áhrifaríkan hátt alla þá þætti sem ein uppfærsla á leikriti felur í sér: texta, leik, leikstjórn og umgjörð, þannig að útkoman var eftirminnileg listræn heild.“
Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið
„Verkið er í senn dapurlegt og bráðfyndið og áhorfandanum í sjálfsvald sett hvort hann lítur á söguna sem nútímadæmisögu um innilokun og frelsisþrá eða hreinlega sem draum um ástina einu. María innsiglar í hlutverki Dóru svo ekki verði um deilt að hún er feiknagóð og fjölhæf leikkona. Á sviðinu hefur hún bæði sjarma og útgeislun og í þessu hlutverki kraumar kímnin undir niðri þó að líka gefist færi á að sýna dramatísk tilþrif.“
Auður Eydal, DV, 21. október 1996
„María Ellingsen er vaxandi leikkona og hefur sýnt síðastliðið ár á sviði og á hvíta tjaldinu hvers hún er megnug. Sú reynsla sem hún býr yfir gerir henni kleift að leika á látlausan og næstum áreynslulausan hátt. Hún er alltaf trúverðug í hlutverkinu, hvar sem borið er niður, og nær fram sterkum áhrifum.“
Sveinn Haraldsson, Morgunblaðið