Ólafía

Ár
2003
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Leikari
Leikhús
Leikhúsið í Kirkjunni
Leikstjóri
Guðrún Ásmundsdóttir

Leikverk um ævi og störf Ólafíu Jóhannsdóttur sem bjó í Noregi í 17 ár og vann afrek sín meðal hinna fátækustu: götufólks, vændiskvenna, drykkjusjúkra og sýfilissjúkra. Að áliti margra trúfræðinga má líkja Ólafíu við Hallgrím Pétursson og sr. Friðrik Friðriksson, af sumum er hún kölluð Móðir Teresa norðursins, og þeir eru til sem hafa sagt að ættu Norðmenn dýrlinga væri Ólafía fremst meðal þeirra. Í miðborg Óslóar, við Brugata, getur að líta minnisvarða með brjóstmynd af konu með skotthúfu og í peysufötum. Undir myndinni stendur: „Ólafía Jóhannsdóttir. Fædd á Íslandi 1864, d. 1924. Vinur hinna ógæfusömu.“ Leikverkið Ólafía var sýnt í kirkjum á Suðurlandi.