Konur skelfa

Ár
1996
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Maggý
Leikhús
Alheimsleikhúsið/Borgarleikhúsið
Leikstjóri
Hlín Agnarsdóttir

Leikritið gerist á kvennaklósetti á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Klósettið verður nokkurs konar athvarf fyrir konurnar fimm sem hittast þar þetta kvöld, staðráðnar í að skemmta sér rækilega. Eina karlpersóna verksins, Skúli, villist af og til inn á kvennaklósettið í leit að vinkonu sinni, sem á það til að drepast áfengisdauða inni á kvennaklósettum. Leikritið fjallar um vinsæl viðfangsefni á borð við fegurð, tísku, ást, afbrýði og dauða. María lék tískudrósina Maggý sem lendir í klósettdrama.

Umsagnir

„Rúsínan í samanlagðri sjónvarpsdagskránni um páskahelgina var leikritið Konur skelfa … Allir leikararnir léku mjög vel. Helst var að María Ellingsen bæri af og var stundum eins og hún ætlaði að rífa karlpeninginn á hol … María fór á kostum og lék stjörnuleik. Áhorfendur urðu raunar vitni að því að stjarna fæddist.“
Indriði G. Þorsteinsson, Morgunblaðið
„María Ellingsen sýnir nýja hlið á sér í líki tískudrósarinnar Maggýjar. Hún er greinilega gamanleikkona af guðs náð.“
Sveinn Haraldsson, Morgunblaðið