Ég heiti Rachel Corrie

Ár
2009
Tegund
Leikstjórn
Hlutverk
Leikstjóri
Leikstjóri
María Ellingsen

Ég heiti Rachel Corrie er sönn saga ungrar konu sem lést við friðargæslustörf í Palestínu. Ísraelsk jarðýta ók yfir hana þar sem hún stóð og mótmælti niðurrifi húsa á Gaza-svæðinu.

Það var leikarinn Alan Rickman sem skrifaði verkið. Hann hreifst mjög af skrifum Rachel, setti sig strax í samband við foreldra hennar og fékk blessun þeirra til að skrifa einleik byggðan á dagbókum hennar. Rickman fékk Katharine Viner, blaðamann á Guardian, til liðs við sig og einleikurinn My Name Is Rachel Corrie varð til og sló í gegn í Royal Court-leikhúsinu í London árið 2005. Síðan þá hefur einleikurinn vakið verðskuldaða athygli um allan heim.

Þóra Karitas Árnadóttir var framleiðandi í samstarfi við Borgarleikhúsið og var verkið sýnt á Litla sviðinu. Þóra lék Rachel og fékk Maríu til að leikstýra.

Til að nálgast verkið valdi María þá leið að vinna með spuna sem byrjaði á líkama og rödd og leiddi svo inn í heim verksins og loks að textanum. Þá notaði hún Viewpoints og aðrar hugmyndir úr tilraunadansi til að skapa ferðalag Rachel í gegnum verkið og gerði það stílfært. Bjartmar Þórðarson var aðstoðarleikstjóri og varð þetta mjög frjó og skemmtileg hópvinna. Hópurinn breytti byggingu verksins töluvert til að gera dramatíkina sterkari og skýra þann þráð sem persónan fylgir. Í gegnum spunann fæddist sú hugmynd að láta allt verkið gerast í unglingaherbergi Rachel og láta það umbreytast í átakasvæðið á Gaza án nokkurra sviðskiptinga, og lék lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar því stærra hlutverk. Filippía Elísdóttir gerði krassandi dúk sem Rachel málaði líf sitt á; dúkkuhúsið hennar myndaði bakgrunninn og dagbækurnar ramma í kringum hana, sem hún gat líka fetað eftir eins og stíg.

Hljóðmynd verksins, sem Magga Stína gerði, var kapítuli út af fyrir sig. Hópurinn náði sambandi við palestínskar flóttakonur sem voru nýkomnar til landsins og bauð þeim að vinna með sér heilan dag í leikhúsinu, syngja vögguvísurnar sínar, sorgarljóðin og bænaköllin. Þær töluðu um að þeirra fólk væri búið að gráta og kalla á hjálp endalaust án þess að nokkur heyrði. Von hópsins var að með því að gera raddir þeirra að hluta af sýningunni næði þessi grátur eyrum almennings. Fjölmiðlaumfjöllun um hlut þeirra í sýningunni vakti einnig athygli á málstað þeirra og gerði þær sýnilegar. Þá komu foreldrar Rachel Corrie til Íslands og af því tilefni var haldið málþing um málefni Palestínu í Borgarleikhúsinu og sýnt verk Caryl Churchill, Seven Jewish Children.