Borgarstjórinn
- Ár
- 2016
- Tegund
- Sjónvarp
- Hlutverk
- Leikari
- Leikstjóri
- Jón Gnarr, María Reyndal, Gagga Jónsdóttir

Gamanþáttaröð á Stöð 2 sem fjallar um drykkfellda borgarstjórann Lúðvík sem man oftast ekki hverju hann lofaði eða hverjum.
María lék forseta borgarstjórnar, sem meðal annars drekkur helst til mikið í vinnustaðapartíi og endar í heita pottinum með aðalgæjanum í stjórnarandstöðunni, sem Dóri DNA lék.
Umsagnir
„Í Borgarstjóranum fá áhorfendur innsýn í heim embættismannakerfisins. Borgarstjórinn í þáttunum þráir bara tvennt í lífinu; að fá stóran jeppa og eignast góða konu. Hann er ekki illmenni en svona mannleysa sem lafir uppi og ég hef oft velt fyrir mér með svona karla sem lenda á ákveðnum stað í tilverunni, það er alveg sama hvað þeir eru vanhæfir og disfunktional. Það fer alltaf vel fyrir þeim.“