Um leikarann

María Ellingsen er fædd í Reykjavík 22. janúar 1964 og er af íslensku, færeysku og norsku bergi brotin. Hún talar íslensku, færeysku, dönsku og ensku.

Hún fór snemma að leika á sviði og í kvikmyndum og hélt til Bandaríkjanna tvítug að aldri til að nema leiklist. Hún lauk BA-prófi frá Experimental Theater Wing við New York-háskóla árið 1988. Sú leiklistaraðferð sem kennd var við ETW byggði mikið á líkamlegri tjáningu, rödd og spuna í anda Grotowskis, sem heimsótti deildina og leiddi leiksmiðjur. Nemendur lærðu að frumsemja verk með „devised theatre“-aðferðinni, þar sem uppsprettan er orð, hlutur eða þema. Mikil áhersla var lögð á dans í anda Merce Cunningham, Mary Overlie kenndi Viewpoints, raddþjálfun var í anda Roy Hart og framúrstefnuleikstjórar á borð við Robert Wilson, Richard Foreman og Anne Bogart voru meðal þeirra sem leikstýrðu nemendaleikhúsinu. Á sama tíma þjálfaði María sig í kvikmyndaleik í samstarfi við kvikmyndadeild New York-háskóla og hafði við útskrift leikið í fjölda stuttmynda auk tveggja íslenskra kvikmynda í fullri lengd.

Við heimkomuna var fyrsta hlutverk hennar á leiksviði í Þjóðleikhúsinu, og meðal hlutverka hennar þar eru Cécile í Háskalegum kynnum og Miranda í Ofviðrinu. Hún fór svo aftur til New York til að bæta við sig leikhúsreynslu, en tilboð um að leika hina austurþýsku Katarinu í sjónvarpsþáttunum Santa Barbara gaf henni tækifæri til að reyna fyrir sér í Hollywood. Þar lék hún fyrst í 170 þáttum þáttaraðarinnar, og síðan tóku við hlutverk í kvikmyndum, meðal annars The New Age hjá Warner Brothers, D2: The Mighty Ducks hjá Disney og Deadly Currents hjá Showtime.

Það var íslenska kvikmyndin Agnes sem kallaði hana heim til Íslands á ný. Þar lék hún titilhlutverkið, vinnukonuna sem drap ótrúan elskhuga sinn og týndi fyrir það eigin lífi á höggstokknum. María var valin besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Verona fyrir Agnesi. Síðan hafa hlutverkin verið mörg í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum á Íslandi og erlendis.

Annað Svið er sjálfstætt leikhús sem María geymir í vasanum og tekur fram þegar gott leikrit knýr hana til framkvæmda. Þar á meðal hafa verið Sjúk í ást eftir Sam Shepard, Beðið eftir Beckett, Svanurinn eftir Elisabeth Egloff, þar sem hún lék hjúkrunarkonuna Dóru sem verður ástfangin af svani, og Salka Valka – ástarsaga í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið, þar sem hún lék Sölku. Þá kom dans- og leikhúsverkið Úlfhamssaga, sem hlaut sjö tilnefningar til Grímuverðlaunanna. Þar steig María fram sem leikstjóri í fyrsta sinn og fór fyrir hópi listamanna við að smíða verkið upp úr íslenskum fornaldarrímum. Næst samdi María leikverkið Mammamamma með Charlottu Böving, byggt á samtölum við konur um það að vera mamma og eiga mömmu, og þróuðu þær verkið áfram með leikhópnum. Síðan tók við Ferðalag Fönixins – um listina að deyja og fæðast á ný, dansleikhúskonsert í anda Úlfhamssögu sem frumsýndur var á Listahátíð í Reykjavík 2011. Fönixinn sló í gegn og ferðaðist víða um Norðurlönd í kjölfarið. Næsta uppsetning leikfélagsins var Enginn hittir einhvern eftir danska verðlaunaskáldið Peter Asmussen, frumsýnt í mars 2016 í Norræna húsinu. Arctic Women, eftir Maríu, Juni Dahr og Reijo Kela, um konur á norðurslóðum og áhrif náttúrunnar á sálina, var frumsýnt á bókmenntahátíðinni í Longyearbyen í september 2019, þar sem María lék á norsku. Það sem er eftir Peter Asmussen var frumsýnt í Tjarnarbíói í janúar 2022; þar lék María í sínum fyrsta einleik undir leikstjórn Ólafs Egils Ólafssonar.

Nú vinnur María að Augunum mínum, sem fjallar um þrjár skáldkonur sem í árdaga 19. aldar takast á við ástarsorg hver á sinn hátt. Fyrsta útgáfa verksins var frumsýnd við New York-háskóla en íslensk útgáfa bíður uppsetningar. Síðast en ekki síst vinnur María að verkinu Trú, von og kærleikur, leiknu verki um ævi Haralds Níelssonar, sem var einn mesti áhrifamaður í andlegum málum Íslendinga á síðustu öld.