The New Age
- Ár
- 1994
- Tegund
- Kvikmynd
- Hlutverk
- Hilly
- Leikstjóri
- Michael Tolkin

The New Age er beitt og skopleg ádeila á neysluhyggju, yfirborðsmennsku og andlega leit hinna ríku í Los Angeles. Þegar vel stæð hjón missa vinnuna og glæsilegur lífsstíll þeirra hrynur leita þau hamingjunnar í nýjum ástarsamböndum, viðskiptahugmyndum og andlegri uppljómun. Myndin dregur upp grátbroslega mynd af samfélagi þar sem allt virðist falt, jafnvel hamingjan sjálf. María Ellingsen fór með hlutverk Hilly í myndinni.