Snerting

Ár
2024
Tegund
Kvikmynd
Hlutverk
Leikari
Leikstjóri
Baltasar Kormákur

Kristófer kynnist japanskri stúlku á námsárum sínum í London en einn daginn hverfur hún sporlaust. Hann snýr heim til Íslands vængbrotinn en heldur loks áfram með líf sitt og giftist annarri konu. Þegar hún fellur frá ákveður hann að leggja upp í langferð til að finna skýringu á því hvað orðið hafi um æskuástina.

Egill Ólafsson leikur Kristófer og María leikur íslensku eiginkonuna. Þetta er í þriðja sinn sem þau mætast á hvíta tjaldinu.