Sjúk í ást

Ár
1989
Tegund
Leikhús
Hlutverk
May
Leikhús
Annað Svið
Leikstjóri
Kevin Kuhlke

Stríð geisar milli elskenda á mótelherbergi í Mojave-eyðimörkinni. María lék May sem er búin að eiga í ástarsambandi við hálfbróður sinn Eddie um árabil og er sífellt að reyna að brjóta sig út úr því. Pabbi þeirra birtist eins og draugur í verkinu og reynir að réttlæta það tvöfalda líf sem hann lifði og leiddi til þessa harmleiks.

Sýningin var sett upp á gömlu bílaverkstæði og sló rækilega í gegn, og tónlistin úr verkinu trónaði á vinsældalistum vikum saman.