Síðasti bærinn í dalnum
- Ár
- 1998
- Tegund
- Leikhús
- Hlutverk
- Ketta
- Leikstjóri
- Hilmar Jónsson

Hið sígilda ævintýri um baráttu góðs og ills þar sem menn og tröll takast á og álfarnir koma til hjálpar. María lék tröllskessuna Kettu sem breytir sér í vinnukonu til að tæla bóndann í burtu svo hún geti yfirtekið bæinn hans.
Umsagnir
„Sýningin er afar vel lukkuð, hugmyndarík, skemmtileg og mjög vel unnin. María Ellingsen leikur skemmtilega groddaralega.“
„Tröllin Kargur og Ketta, sem Jón St. Kristjánsson og María Ellingsen leika, eru rosaleg í útliti en um leið svo hlægileg að smáfólkið verður ekki hrætt. Þegar þau bregða sér í mannslíki yfirfæra Jón og María tröllskapinn skemmtilega.“