Jónsmessunæturdraumur

Ár
2025
Tegund
Leikstjórn
Hlutverk
Meðleikstjóri
Leikhús
Tjarnarbíó

„Ef satt skal segja þá eru skynsemi og ást ekki mikið í samfloti núorðið.“

Djúpt inni í töfraskógi týnast fjórir ungir elskhugar á flótta og flækjast inn í stríð konungs og drottningar álfanna, ásamt leikhópi handverksmanna sem á sér einskis ills von. Tunglsljósið og döggin, í bland við hugvíkkandi töfrasafa álfanna, snúa öllu á hvolf þessa örlagaríku Jónsmessunótt.

Leikritið virkar létt og einfalt á yfirborðinu en undir niðri er það marglaga og djarft. Það er einmitt ástæða þess að við rýnum aftur og aftur í verk Shakespeares; ekki bara vegna þess að þau eru „klassík“, heldur vegna þess að þau vekja spurningar um mannlegt eðli sem við erum enn að reyna að svara 430 árum seinna. Í Jónsmessunæturdraumi takast á draum- og martraðarkenndar hliðar ástarinnar, þrá og afbrýðisemi, kúgun og undirgefni, stjórn og hömluleysi. Á einni sumarnóttu ferðumst við úr ramma borgarinnar út í frelsi villtrar náttúrunnar, frá hatri til ástar, frá svefni til vöku.

Tólf manna hópur ungra og nýútskrifaðra leikara og dansara tókst á við þennan ástsælasta gamanleik allra tíma. María leiddi skapandi ferlið ásamt Magnúsi Thorlacius og Eyju Sigríði Gunnlaugsdóttur, sem skipuðu saman leikstjórateymi. Þar sem ekkert fjármagn stóð að baki uppsetningunni voru það listamennirnir sjálfir sem gerðu sýninguna að veruleika með vinnuframlagi sínu. Umgjörðin var einföld og áherslan öll á textann og samleikinn.

Móttökurnar voru gríðarlega góðar og sýningin hætti fyrir fullu húsi, þótt hún hefði fengið að sýna ellefu sýningar, sem er met í Tjarnarbíói.

Sérstakar þakkir: Ólafur Kristinn, Hólmfríður Hafliðadóttir, Kristinn Óli Haraldsson, Tómas J. Þorsteinsson, Tóma rýmið, Te og kaffi, Eykt, Topplagnir og Orri Hauksson.

Umsagnir

„Besta sýning sem ég hef séð á gamanleik Shakespeares og sú allra fyndnasta.“
Sveinn Haraldsson
„Kröftug og fjörug uppfærsla. Sannarlega ánægjuleg kvöldstund. Metnaður á öllum póstum, ástríða og leikgleði. Og kannski ekki síst, trú á töframátt textans og sögunnar.“
Þorgeir Tryggvason, Morgunblaðið
„Metnaðurinn sem settur hefur verið í sýninguna fer ekki fram hjá nokkrum leikhúsgesti.“
Katla Ársælsdóttir, Víðsjá