Háskaleg kynni
- Ár
- 1989
- Tegund
- Leikhús
- Hlutverk
- Cécile
- Leikhús
- Þjóðleikhúsið
- Leikstjóri
- Benedikt Árnason
Sagan segir frá glaumgosanum Valmont og samkvæmisdrottningunni frú Merteuil, og hvernig þau eyðileggja líf tveggja kvenna, sakleysingjans Cécile og hinnar dyggðum prýddu frú Tourvel. En Valmont seilist of langt í sókn sinni eftir að leggja þá síðarnefndu, verður ástfanginn – og ferst. Það er ekkert pláss fyrir ást í þessum heimi, hún er veikleiki sem kostar þig lífið. Sá sem er miskunnarlausastur og kaldastur vinnur, aðrir farast. María lék hina ungu Cécile.