Ef ég væri þú

Ár
1988
Tegund
Leikhús
Hlutverk
Leikari
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Leikstjóri
Andrés Sigurvinsson

Fjórir einþáttungar um samband mæðgna og afstöðu móður til dóttur sem lifir lífi sínu á annan hátt en henni hugnast. Þó ekki þurfi að draga kærleikann á milli þeirra í efa þá drífur hann samt ekki alla leið. María lék hippastelpu sem stendur upp í hárinu á mömmu sinni.

Umsagnir

„María Ellingsen er ung leikkona sem óhætt er að vænta mikils af. Hún er röskleg og köld í hlutverki dótturinnar, sem er bæði uppreisnargjörn og það örlar jafnvel á hefnigirni í fari hennar. María hefur mjög eðlilega og örugga sviðsframkomu og leikur af miklum þokka!“
Auður Eydal MBL 3.október 1988