Vitnisburður Melangell

María túlkaði sögu Hunangsengilsins, ásamt fjórum söngvurum og fjórum tónlistarmönnum, í Hörpu og Skálholti. Hanne Tofte Jespersen er höfundur þessa tónlistarleikverks, en hún heillaðist af þessari gömlu sögu um pílagríminn Melangell sem gerðist einsetukona og dulspekingur í einangruðum dal í Norður-Wales um árið 500. Ljóðatexta skrifaði Mike Harris, en íslenska þýðingu gerði Þórarinn Eldjárn.