Trú, von og kærleikur

Trú, von og kærleikur er vinnuheiti sjónvarpsþáttaraðar sem María hefur í þróun. Þar beinir hún sjónum sínum að sr. Haraldi Níelssyni, langafa sínum, sem talinn er einn mesti áhrifamaður síðustu aldar í andlegum málum Íslendinga.

Haraldur var prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands frá stofnun hans árið 1911 og háskólarektor í annað sinn þegar hann lést vorið 1928. Hann var einn helsti boðberi frjálslyndu guðfræðinnar á Íslandi á síðustu öld og líklega einn mesti prédikari sem íslensk kirkja hefur átt fyrr og síðar. Langar raðir mynduðust við Fríkirkjuna í Reykjavík, þar sem hann prédikaði reglulega. Í spænsku veikinni 1918 var hann á þönum milli veikra í Reykjavík til að hugga og styrkja. Hann stofnaði Sálarrannsóknafélag Íslands ásamt vini sínum og samstarfsmanni, Einari H. Kvaran rithöfundi, til að gefa fólki ljós og von í þeirri sorg sem þá ríkti í Reykjavík. Hans er einnig minnst fyrir það afrek að þýða Gamla testamentið úr frummálinu, en sú þýðing kom fyrst út árið 1912.

Margar persónur tengjast sögu hans, og má þar nefna Indriða miðil, Matthías Jochumsson, Ólöfu frá Hlöðum, Einar H. Kvaran, Jón Helgason og Hallgrím Sveinsson biskup, auk þeirra Bergljótar Sigurðardóttur og Aðalbjargar Sigurðardóttur, sem voru konurnar í lífi hans.