Tími nornarinnar fer í tökur

Tökur á sakamálaþáttaröðinni Tími nornarinnar eftir sögu Árna Þórarinssonar eru hafnar á Akureyri. Friðrik Þór Friðriksson leikstýrir og Ari Kristinsson er tökumaður. Margir leikarar koma við sögu, meðal annars Sverrir Guðnason frá Svíþjóð. María Ellingsen leikur virtan ritstjóra Akureyrarblaðsins.