Rætur – lokasýning Nordisk Ljus

Rætur, lokasýning Nordisk Ljus, var sýnd við sólsetur í Joensuu í Finnlandi í kvöld. Þar stigu á svið hundrað norræn ungmenni undir stjórn Maríu Ellingsen, Raisu Foster, Karoliinu Turkka, Örnu Valsdóttur og Tero Sarkkinen. Lýsingu hannaði Kari Kola. Ungu listamennirnir hafa ferðast um Norðurlöndin þver og endilöng í fimm listsmiðjum: leiklist, dansi, sirkus, myndlist og tónlist. Þar hafa þau kynnst listamönnum á hverjum stað, sem hver um sig hafa opnað fyrir þeim nýjan heim.
María leiddi leiklistarhópinn frá einangruðum Modalen í Noregi, til fjalla í Tromsø, út á flæðiengi í Lapplandi og loks til Austur-Finnlands. Það var því mikið sjónarspil sem tvö þúsund manns fengu að sjá á eyju í miðri borginni í kvöld.