Quack quack – Mighty Ducks hittast á ný í Hollywood
Endurnar mögnuðu voru kallaðar saman til endurfunda í Hollywood, 20 árum eftir að þessi vinsæli þríleikur birtist á hvíta tjaldinu. María lék aðstoðarþjálfara óvinaliðsins, hinna íslensku víkinga í D2. Það var framleiðandi myndarinnar Jordan Kerner sem bauð heim til sín, og var Hollywood-stíll á þessu: grillað í garðinum við sundlaugina.

Sumir fyrrverandi unglinganna voru óþekkjanlegir, en íslenski óþokkinn, sem Daninn Carsten Norgaard lék, hafði lítið breyst, nema hvað hann var kominn með gleraugu.