Ný sería af Hæ Gosa í uppsiglingu
Ný þáttaröð af Hæ Gosa fer í framleiðslu í vor og verða teknir upp sex þættir í Færeyjum og á Akureyri. Síðasta þætti lauk á því að Fríðborg fór í fússi með gömlum kærasta til Færeyja, og feðgarnir voru á leið þangað með Norrænu til að reyna að dekstra hana heim. Þetta verður sem sagt gamanþáttasumarið.