Nordisk Ljus 2014

María fundaði í Finnlandi í ágúst með öðrum stjórnendum listahátíðarinnar Norræna ljósið 2014, ævintýris fyrir listræn ungmenni. María leiðir leiklistarhópinn, en hátíðin byggir á fimm listgreinum: dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist. Fimmtán þátttakendur eru valdir í hvern listhóp og er hátíðin einstakt tækifæri til að þróa listræna hæfileika sína, vinna með öðrum skapandi ungmennum, kynnast nýrri og gamalli menningu og njóta leiðsagnar þekktra listamanna frá Norðurlöndunum.

Hver listhópur ferðast í fylgd síns aðallistamanns og fararstjóra og tekur þátt í þremur vinnustofum á ólíkum stöðum. Í hverri vinnustofu er unnið með listamönnum á staðnum. Að lokum koma allir listhóparnir saman í Joensuu í Finnlandi og vinna að lokasýningu hátíðarinnar undir stjórn aðallistamannanna fimm og Tero Sarkkinen, listræns stjórnanda hátíðarinnar.