Leynilegur dansferill í Finnlandi
Það má segja að María eigi leynilegan dansferil í Finnlandi, en þar dansaði hún í fjórða skipti nú í haust.
Í norrænu listasamstarfi hefur hún tengst tveimur tilraunadönsurum, Reijo Kela og Raisu Foster. Þar sem Finnar hugsa ekki bara út fyrir boxið heldur hafa hreinlega ekki frétt af því að boxið sé til, hafa þau án þess að blikka auga fengið Maríu með sér í ýmsa dansgjörninga: utandyra, inni í listasöfnum, úti í mýri í Lapplandi og nú síðast í grasagarðinum í Joensuu, sem Kari Kola lýsti upp sem hluta af ljósahátíð.



