Leiklistarkennsla á Grænlandi
Grænlenska þjóðleikhúsið rekur leiklistarskóla og var Maríu boðið að koma þangað og kenna Grotowski-tækni og spuna. Árið áður höfðu nemendur skólans komið á námskeið hjá henni á Íslandi.
Hún notaði um leið tækifærið til rannsóknarvinnu fyrir nýtt verk um konur á norðurslóðum.
„Ég flaug til Nuuk í hauströkkrinu og steig út í þessa yfirþyrmandi víðáttu sem er í senn falleg og ógnvænleg. Um kvöldið dönsuðu yfir höfði mér þau sterkustu norðurljós sem ég hef augum litið. Leikhúsið er lítið í sniðum og skólinn líka. En það sem er ekki lítið er krafturinn og dýptin í listamönnunum og tenging þeirra við 5000 ára gamla menningu sína og sögu á þessari snjóauðn. Allt er lifandi, steinar, haf, himinn, og allt tengist.“