Gleðisprengja!

Ástsælasti gamanleikur allra tíma fór á svið Tjarnarbíós haustið 2025 undir merkjum Silfurskeiðarinnar.

Það var sannur heiður að fá að leiða hóp ungra leikara í gegnum sköpunarferlið sem skilaði þessari kraftmiklu sýningu. Það var ekki hægt annað en að segja já þegar tvær ungar, nýútskrifaðar leikkonur fengu jafn metnaðarfulla hugmynd að fyrsta verki sínu og ætluðu að færast það í fang án þess að hafa nokkra peninga í höndunum. Ég gerði það þó með því skilyrði að fá til liðs við mig Magnús Thorlacius og Eyju Sigríði Gunnlaugsdóttur, og saman skipuðum við leikstjórateymi til að halda utan um þetta stóra verkefni.

Við hófum ferlið á Jónsmessunótt á Kolstöðum í Borgarfirði, þar sem hópurinn slípaðist saman og velti sér upp úr dögginni. Síðan tók við leiksmiðja þar sem tilraunaleikhúsaðferðir Grotowskis, raddvinna Roys Hart og Viewpoints Anne Bogart og Mary Overlie gáfu tóninn. Sumarið fór í textalærdóm, og í ágúst hittumst við á ný og sviðsetning hófst. Ragnheiður Steindórsdóttir lagði okkur ómetanlegt lið við framsögnina, enda lykilatriði að hún sé upp á tíu til að verkið nái til áhorfenda. Gríðarlega gaman var að vinna með þýðingu Þórarins Eldjárns, sem hann léði okkur af rausnarskap.

Þá kom annar hagyrðingur sterkur inn þegar Króli gekk til liðs við okkur og samdi texta við lokalag sýningarinnar, Nakin í dögginni.

Sýningin var frumsýnd með miklum hátíðarblæ; forseti Íslands var viðstaddur og tók lagið með hópnum að sýningu lokinni. Strax varð ljóst að leikgleðin á sviðinu smitaðist út í sal til áhorfenda og úr varð hin mesta gleðisprengja. Áhorfendur og gagnrýnendur luku lofsorði á sýninguna, og við urðum að hætta fyrir fullu húsi þegar sýningarkvótinn í Tjarnarbíói var sprunginn.