Jónsmessa í Lapplandi
Ævintýralegur gjörningur með Reijo Kela á Jónsmessunótt í Lapplandi, þar sem brúðurin úr Fönixinum dansaði ásamt öðrum meyjum úti í mýri. Mýrin var blautur mosi þegar við æfðum verkið, en daginn sem við áttum að sýna var vatnið komið upp í læri. Við héldum að við yrðum að hætta við, en Reijo fannst þetta bara meira spennandi og nokkur atriði á sundi bættust við.