Jóga

Jóga er tónlistar- og mynddiskur þar sem hugljúf tónlist Friðriks Karlssonar og léttar jógaæfingar undir leiðsögn Maríu Ellingsen koma saman. Friðrik, sem er mikill áhugamaður um mannrækt, langaði að gera fallega tónlist fyrir fólk sem stundar jóga og fékk skólasystur sína Maríu til liðs við sig. María er þekkt sem leikkona, leikstjóri, höfundur og kennari, en Friðrik vissi að hún hafði líka stundað jóga frá menntaskólaárum. Jóga er margþætt; María lærði fyrst líkamsstöður, öndun og slökun en hefur dýpkað ástundun sína og skilning ár frá ári, sótt námskeið í jógafræðum og dvalist í klaustri á Indlandi, þar sem rætur jóga liggja. Jóga stuðlar að heilbrigði, styrkir líkama og sál og skapar jafnvægi, slökun og hugarró. Tilgangurinn er að ferðast út úr viðjum hugans og inn í kjarnann, þar sem hugur, líkami og sál sameinast. Útgáfa Friðriks og Maríu er hugsuð sem veganesti í það ferðalag. Æfingarnar eru teknar upp úti í íslenskri náttúru, þar sem fegurð mosans og gárurnar á vatninu renna saman við ljúfa tónlistina og fuglasönginn.