Ísalög

Það kom loks að því að ég færi í pólitík: í íslensk-sænsku þáttaröðinni Ísalögum fékk ég tækifæri til að berjast gegn olíuborunum á norðurskautinu sem utanríkisráðherra Íslands á fundi Norðurskautsráðsins.
Sagan gerist á Grænlandi en tökur fóru að mestu fram í Stykkishólmi, og það var nokkuð magnað að sjá bæinn breytast og heyra sleðahunda góla þar á kvöldin.
Þótt pólitíkusarnir sætu mestmegnis á leiðinlegum fundi meðan allur hasarinn gerðist úti á ísnum var ekki ónýtt að hitta kollega frá Norðurlöndunum.