Hver drap Friðrik Dór?

Þá eru þessir ruglfyndnu sjónvarpsþættir komnir á skjáinn, þar sem ég gat nýtt mér að vera hálfur Færeyingur og talað með þykkum hreim í senunum. Gaman var að vinna með Eilífi Erni og mótleikararnir voru sko ekki af verri endanum: Villi Netó hlýr og gefandi, Benni Erlings dásamlegur og svo hæfileikabúntin Friðrik Dór og Jón Jónsson. Ég held ég hafi aldrei hlegið eins mikið á setti.