Höfundasmiðja hjá NYU í Abú Dabí
Augun mín og augun þín er nýtt leikverk sem María Ellingsen, Kevin Kuhlke og Snorri Freyr Hilmarsson hafa haft í smíðum í nokkur ár.
Verkið tengir saman líf skáldkvennanna Rósu Guðmundsdóttur, Agnesar Magnúsdóttur og Guðnýjar Jónsdóttur. Þær verða allar fyrir ástarsorg í árdaga 19. aldar og bregðast við á ólíkan hátt. Ein drepur, ein deyr og ein lifir af. Verkið er ferðalag í gegnum sorgina og inn í hjartað og fjallar líka um þörf okkar til að búa til „söguna“ um lífið okkar.
Í vetur fengum við tækifæri til að prófa verkið og fínpússa það með leiklistardeild New York-háskóla í Abú Dabí, og nú er það tilbúið!