Náðarstund – Hannah Kent
María las upp úr Náðarstund eftir Hönnu Kent fyrir þessi jól, en hún hitti Hönnu þegar hún var stödd hér í haust við útgáfu bókarinnar. Það var magnaður fundur, enda höfðu þær báðar átt margar stundir með Agnesi Magnúsdóttur og sögu hennar. María lék Agnesi í samnefndri kvikmynd og vinnur nú að leikverki þar sem hún kemur við sögu.