Hátíðarsýning Nordic Ljus

Listahátíðin Nordic Ljus 2014 endaði með magnaðri hátíðarsýningu utandyra í Joensuu í Finnlandi.

Listahátíðin var skipulögð þannig að ungir norrænir listamenn í dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist fengu tækifæri til að ferðast á milli landa og taka þátt í þremur vinnustofum með þarlendum listamönnum, og safna efnivið fyrir lokasýninguna. Listamenn frá fimm löndum leiddu hópana og sköpuðu sýninguna saman: María Ellingsen, Raisa Foster, Andreas Ljones, Arna Valsdóttir og Karoliina Korhonen, og ljósameistarinn Kari Kola skapaði ævintýralega umgjörð.

Sýningin hófst á því að broti úr Grænlandsjökli, sem tónlistarhópurinn hafði tekið með sér þaðan, var róið inn á voginn undir lifandi tónlist og það látið falla í vatnið.