Hæ Gosi! 2 slær áhorfsmet
Önnur þáttaröð Hæ Gosa fór af stað með miklum krafti á SkjáEinum í haust og hefur nú slegið öll áhorfsmet þar. Þar fer saman úrvalslið leikara og handrit með skemmtilega óþægilegum húmor.
Síðasta þáttaröð endaði á því að Fríðborg hin færeyska, sem María Ellingsen leikur, rauk í fússi frá eiginmanni sínum Berki, sem Árni Pétur Guðjónsson leikur. Hún hafði verið mjög upptekin af því að hressa upp á kynlíf þeirra hjóna en hann aðallega af sjálfum sér.
Í Hæ Gosa 2 eltir Börkur hana til Færeyja og verður ferðin mjög skrautleg og afdrifarík. Fríðborg fær í kjölfarið ákafa löngun til að eignast barn og setur allt á annan endann til að láta þann draum rætast.