Guðríður sigldi í höfn í kvöldsólinni
Skemmtileg frumsýning um borð í Íslendingi í Víkingaheimum föstudaginn 14. maí. Fullt skip af fólki og dýrindisfiskisúpa framreidd á nýja veitingahúsinu. Þórunn Erna geislaði og hreif alla með í þetta ævintýralega ferðalag í kvöldsólinni.
„Ég gef þessu 9 af 10 mögulegum, þetta var skemmtilegra en Billy Elliot!“ sagði Viktor, 12 ára.