„Guðfræðisnámið“: fyrirlestur Haralds Níelssonar frá 1913

Til að minnast þess að hálf önnur öld er nú liðin frá fæðingu sr. Haralds Níelssonar flutti María, sem er langafabarn hans, fyrirlesturinn „Guðfræðisnámið“ í Háskóla Íslands 1. desember, en ávarp þetta hélt Haraldur yfir guðfræðinemum árið 1913.

„Þetta er hálfgerður gjörningur því ég stend þarna í hans sporum í guðfræðideildinni og lifi mig inn í þetta. Ég er búin að liggja yfir bréfum hans og skjölum í tengslum við sjónvarpsþáttaröð sem ég er að þróa og fann þennan fyrirlestur þar. Það er hluti af ferlinu að setja mig í hans spor, svo ég las beint af upprunalega handritinu hans, sem eru 28 handskrifaðar síður.“