Gamanþáttaröðin Hæ Gosi!

María leikur hina færeysku Fríðborgu í glænýrri gamanþáttaröð, Hæ Gosi!, sem frumsýnd verður á SkjáEinum 30. september.

Ungt kvikmyndagerðarfólk frá Zeta Film skrifar og framleiðir þættina en Arnór Pálmi Arnarson leikstýrir.

Tökur fóru fram á Akureyri og í nágrenni í júlí, þar sem sex þættir voru teknir upp á einum mánuði. Sagan snýst um bræðurna Börk og Víði, sem Árni Pétur og Kjartan Guðjónssynir leika; konur þeirra, færeysku hárgreiðslukonuna Fríðborgu, sem María Ellingsen leikur, og hina framagjörnu Pálínu, sem Helga Braga Jónsdóttir leikur; pabba strákanna og vin hans, sem Þórhallur Sigurðsson og Þráinn Karlsson leika; og síðast en ekki síst vini bræðranna, sem Hjálmar Hjálmarsson og Hannes Óli Ágústsson leika.