Fönixinn undir berum himni
Ferðalag Fönixins var sýnt utandyra í Finnlandi í október. Þetta er stíll sem Reijo Kela hefur þróað um árabil og María Ellingsen sló til og velti sér upp úr finnskri mold og lyngi í dýrindisbúningum Filippíu Elísdóttur. Kristiina Ilmonen var sérstakur gestur á þessari sýningu og lék á rödd, flautur og trommur. Sýningin var áhrifamikil þó leikarinn og dansarinn væru ansi rispaðir að leikslokum.