Fönixinn tekur flugið á Listahátíð í vor
Dansleikhúsverkið Ferðalag Fönixins – um listina að deyja og fæðast á ný verður á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í vor og verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins 25. maí klukkan 20:00.
Magnaður leikhúsviðburður þar sem Eivør Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona blása, hvert með sínum hætti, lífi í glæður þessarar táknrænu goðsögu. Áhorfendur eru leiddir inn í draumkenndan heim þar sem söngkonan magnar upp seið takts og tóna, dansarinn og leikarinn stíga á svið og áhorfandinn upplifir sýninguna í miklu návígi.
Filippía Elísdóttir, Snorri Freyr Hilmarsson og Björn Bergsteinn Guðmundsson skapa myndheim sýningarinnar.