Fönixferðin, um kynstrið að doyggja og rakna við af nýggjum
Ferðalagi Fönixins var boðið til Norðurlandahússins í Færeyjum, þar sem sýningin fékk frábærar viðtökur jafnt áhorfenda sem gagnrýnenda og var troðfullt út úr dyrum. Það var ævintýri fyrir leikhópinn að heimsækja þorpið hennar Eivarar, enda var fólk drifið í sjósund og slegið upp veislu. Eivør endaði svo á að syngja fyrir hópinn í kirkjunni sinni, þar sem hún tók sín fyrstu skref sem söngkona þegar hún söng gömul sálmalög án undirleiks með afa sínum.